Alþjóðlegt friðarstarf

Friður 2000
var stofnað á Íslandi árið 1995 og vakti mikla
athygli á alþjóðlegum vettvangi fyrir
jólapakkaflug til Hvíta Rússlands, Bosníu og
Írak.
Smelltu hér til að
sjá
VIDEO
Mannúðarverðlaun:
Gríska réttrúnaðarkirkjan að tillögu UNESCO í
Grikklandi veiti Ástþóri Magnússyni stofnanda
Friðar 2000 mannúðarverðlaunin GULLNA KROSSINN
vegna flugsins til Írak. Talið var að flugið og
mótmæli Ástþórs í Bagdad gegn nýju Írakstríði
hefði átt stóran þátt í því að koma á stað
mikilli mótmælaöldu um allan heim gegn
fyrirhuguðum loftárásum Clinton stjórnarinnar á
Írak. Málið fékk mikla athygli athygli
fjölmiðla og eftir gífurleg mótmæli í öllum
heimshornum náði bandaríkjastjórn ekki
alþjóðlegum stuðningi við nýtt Persaflóastríð og
ekkert varð úr því á þeim tíma.
Jólapakkaflug stöðvað:
Samtökin Friður 2000 voru sett í bann hjá
Utanríkisráðuneytinu, og öllu samstarfi og
nauðsynlegum samskiptum í gegnum ráðuneytið við
öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna hafnað.
Flugleiðaþotu fullri af jólapökkum var snúið við
af flugbraut með lögregluvaldi og neitað um
flugtaksheimild nema farangur Ástþórs og
jólasveinsins sem innihélt fleiri tonn af
jólapökkum og matvælum fyrir stríðshrjáð börn
yrði skilið eftir.
Ofsóknir frá ríkisvaldinu:
Fjáröflun Friðar 2000 hefur einnig sótt ofsóknum
af hálfu Dómsmálaráðuneytisins og var lögreglan
látin loka símalínum sem tóku á móti framlögum
og óhróðri og ósannindum dreift í fjölmiðla í
samstarfi við Landssímann, fréttastofu
Ríkisútvarpisins og DV. Þetta gerðist
eftir fund í ráðuneytinu þar sem Ástþór neitaði
alfarið að hætta að deila á vinnubrögð Halldórs
Ásgrímssonar í utanríkismálum.
Þegar
stjórnarherrarnir lýstu því yfir að ætlunin væri
að nota farþegarvélar Icelandair og Air Atlanta
til að flúga með vopn og hermenn í væntanlegu
Persaflóastríði, sendi Friður 2000 út viðvörun
að slíkt myndi geta leitt til sprengjuárásar
gegn flugvélum okkar. Ástþór var
handtekinn og settur í fangelsi, en nokkrum
dögum síðar var reynt að granda Ísraelskri
farþegaþotu með sprengjuvörpu.
Mótmæli Ástþórs
urðu til þess að menn sáu að sér, allt í einu
var komin allt önnur túlkun í flugsamningana en
ráðherrarnir höfðu fyrst kynnt fyrir þjóðinni og
ekkert varð úr því að Icelandair væri notað til
að flytja vopn og hermenn til Írak. Menn
hafa reynt að snúa út úr málinu með alskyns
uppnefnum á Ástþór m.a. að kalla hann
"þorpsfífl"
og þaðan af álíka uppnefnum í fjölmiðlum,
en það sem eftir stendur er að uppákomurnur urðu
til þess að stöðva afglöp sem hefðu getað
brennimerkt Íslenskt flug um alla framtíð.
Heimsækið vef
Friðar 2000 hér:
www.peace2000.org
|